Góðan dag.
Við erum nemendur á 4. ári í Kvennaskólanum í Reykjavík. Næstkomandi þriðjudag, 9. mars, er góðgerðardagur í Kvennaskólanum þar sem allir bekkir skólans munu hafa undirbúið góðgerðarstarfsemi í þágu ýmissa félaga sem þurfa stuðning. Okkar bekkur fékk félag einstaklinga sem greinst hafa með MND-sjúkdóminn. Í stuttu máli lýsir þessi sjúkdómur sér þannig að hreyfitaugar líkamans hætta að virka og af því leyðir máttleysi í útlimum og að lokum algjör lömun. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður. Þegar sjúkdómurinn ágerist þurfa sjúklingar að ferðast allra sinna ferða í hjólastól. Meðallíftími sjúklinga eftir greiningu er frá 1-6 ár.
Við ætlum okkur því að reyna að láta gott af okkur leiða til styrktar þessu félagi með 2 gjörningum. Í fyrsta lagi ætlum við að fara í stofnanir, verslanir og bíóhús o.fl. þar sem einn úr bekknum er í hjólastól, og kanna aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Munum við taka upp gjörninginn á myndbandsvél og útbúa stuttmynd. Í öðru lagi ætlum við okkur að safna áheitum með því að ferðast í hjólastól frá Keflavíkur til Reykjavíkur þennan þriðjudag. Munu 8 einstaklingar taka þátt í þeim gjörningi, þar sem tveir verða við hjólastólinn í einu á meðan hinir eru í bíl sem ekur í humátt á eftir. Vegalengdin er í kringum 50 km og áætlum við að þetta taki um 6-7 klukkustundir.
Fólk sem veit um fyrirtæki eða félög sem eru til í að heita á þennan gjörning okkar og styrkja gott málefni er beðinn að hafa samband eða greiða beint inn á reikning framkvæmdasjóðs í banka 1175, hb. 05, reikn. 410900, kt. 630293-3089.
Kv. Nemendur í 4.NS, Kvennaskólanum í Reykjavík
p.s. auk þess hægt að hringja í
Guðmund Má (s:864-4433) eða
Börk Smári (s: 666-1990)
http://www.facebook.com/event.php?eid=360880709432