Alþjóðlegt hjólastólarallý á Íslandi!
á alþjóða MND deginum 20. júní 2010, 14.00-16.00, Thorsplani í Hafnarfirði
20.06.2010, kl.14:00 - 16:00 ÖBÍ
Alþjóðlegt hjólastólarallý á Íslandi!
Á alþjóða MND deginum 20. júní nk.!
Staður: Thorsplan í Hafnarfirði og næsta nágrenni.
Dagur: Sunnudaginn 20. júní 2010.
Stund: 14:00-16:00 (Tónleikar á eftir til 18:00)
Keppnisflokkar:
A. Rafmagnshjólastólar.
B. Handknúnir stólar.
C. Stjörnuflokkur á handknúnum stólum (vanir rallí ökumenn og „frægir“ einstaklingar.)
Þau sem þarfnast aðstoðar manns til að komast á leiðarenda eru að sjálfsögðu velkomin. Markmiðið er að hafa gaman af lífinu og njóta dagsins saman.
Verðlaun: Bikarar fyrir a og b flokk. Allir fá þátttökuverðlaun auk drykkja.
Tónleikar á planinu til kl. 18:00
Að rallinu loknu munu verða tónleikar á planinu til kl. 18:00. Veltibíllinn verður á staðnum.
Allir eru velkomnir og enginn aðgangseyrir eða þátttökugjöld.
Vegna undirbúnings er fólk beðið að skrá sig til þátttöku á netfangið gudjon@mnd.is eða í S. ꏬſ> 823 7270
Fjölmennum og brosum saman.
MND félagið á Íslandi