Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi virt?

Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi virt?

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Af því tilefni hefur ÖBÍ haldið fræðslu- og umræðufundi víðsvegar um landið. Næstu 3 fundir verða hér í Reykjavík:

·         2. nóvember á Grand Hóteli Reykjavík, klukkan 17.00-18.30.

·         3. nóvember kl. 17.00-18.30, Gerðuberg, A-sal, Gerðubergi 3-5, Reyjavík.

·         9. nóvember kl.17.00-18.30, Ráðhúsi Reykjavíkur, vestursal.

Efni fundanna:

  1. Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Sigurjón Unnar Sveinsson lögfræðingur ÖBÍ, flytur erindi Helgu Baldvinsd. Bjargardóttur - Fötlunarfræði HÍ.
  2. Er breytinga að vænta? Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ
  3. Krafa Öryrkjabandlags Íslands: Mannréttindi fyrir alla, Hjördís Anna Haraldsdóttir, varaformaður ÖBÍ, flytur erindi Guðmundar Magnússonar formanns ÖBÍ.
  4. Umræður og fyrirspurnir

Fundarstjóri: Steinunn Þóra Árnadóttir

Réttindagæslumaður fatlaðs fólks mætir á fundinn.

Hvetjum fatlað fólk, aðstandendur, alla sem starfa að málefnum fatlaðs fólks og aðra áhugasama til að mæta.

Slóð á auglýsinguna og fleiri upplýsingar varðandi fundina:  http://www.obi.is/i-brennidepli/nr/853

Slóð á fróðlegt efni um yfirfærlsuna: http://www.obi.is/i-brennidepli/nr/626

28.10.2011 -