Gjafir til sjúkraþjálfunar á Landspítala

 
 
 
 
 
 

Sara Hafsteinsdóttir yfirsjúkraþjálfari, Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins og fulltrúar frá Lionsklúbbnum Frey og Karlakórnum Þröstum.

 
29. 01 2010

Gjafir til sjúkraþjálfunar á Landspítala

 

Sjúkraþjálfun á Landspítala hefur nú fyrri hluta vetrar 2009 til 2010 fengið tvær nytsamar gjafir frá velunnurum sínum.

Lionsklúbburinn Freyr gaf tvo þrekstiga, annan sjúkraþjálfun í Fossvogi og hinn sjúkraþjálfun við Hringbraut. 

MND félagið færði sjúkraþjálfun í Fossvogi MOTOmedhjól með dyggri aðstoð Karlakórsins Þrasta sem hélt ferna tónleika síðastliðið haust til styrktar félaginu.  Lionsklúbburinn Freyr hjálpaði til við kaup á hjólinu með myndarlegu fjárframlagi til MND félagsins. 

Tækin hafa verið tekin í notkun. Þau voru kærkomin og koma sér mjög vel í því að auka möguleika sjúklinga í þjálfun

15.2.2010 -