Tilkynning um flutning
Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands að Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík.
Næstu tvær vikurnar fara í flutninga og verður því þjónustan ekki alveg með sama móti þessar vikur meðan á flutningum stendur. Vonum við að viðskiptavinir sýni þessu skilning.
Starfsemin verður opin eins og venjulega að Smiðjuvegi til og með 10. febrúar.
Fimmtudaginn 11. febrúar verður lokað.
Föstudaginn 12. febrúar verður opið eins og venjulega og þá að Vínlandsleið 16.
Vinsamlegast látið þetta berast meðal ykkar samstarfsmanna/félaga.
Fyrir hönd starfsmanna Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ