Mannréttindi í þrengingum

Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur, í samvinnu við Háskólann á Akureyri, gefið út bókina Mannréttindi í þrengingum. Af því tilefni hyggst Mannréttindaskrifstofan halda málstofu þann 28. október nk.

Á málstofunni verða flutt erindi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi í efnahagsþrengingum út frá þverfaglegu sjónarhorni. Erindin flytja höfundar bókarinnar Rachael Lorna Johnstone, dósent við lagadeild Háskólans á Akureyri og Aðalheiður Ámundadóttir, meistaranemi í lögfræði við HA. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar flytur og sína hugleiðingu um efni bókarinnar.
Málstofan verður í fyrirlestrarsal CenterHotel Plaza við Ingólfstorg í Reykjavík frá kl. 14- 16.00. Boðið verður upp á léttar veitingar í kaffihléi.

24.10.2011 -