MND félagið fundar á Akureyri laugardaginn 4. september

MND félagið fundar á Akureyri laugardaginn 4. september. Nokkur okkar ætla Norður á föstudeginum og heim á sunnudeginum. Við munum styrkja félaga og aðstoðarfólk til að komast á staðinn og öllum stendur til boða svefnpláss í húsi sem kallað er Botn. Í húsinu eru 7 herbergi með 11 rúmum þar af 4 sjúkrarúm(gömul) og nokkrar þunnar dýnur. Botn er staðsettur rétt innan við Hrafnagil, beygt til hægri við fyrsta afleggjara eftir Hrafnagil, þar er merkt Hranastaðir og Botn, Botn er fyrra húsið sem komið er að, þetta eru svona 10-12 mín frá Akureyri.
Þetta verður örugglega góð skemmtun og að auki fróðleg heimsókn. Sameiginlegur kvöldverður verður á laugardeginum. Gott væri að vita um fjöldan sem óskar eftir gistingu og eru þau hin sömu beðin að skrá sig á mnd@mnd.is.

Sjáumst hress!!
13.7.2010 -