Ráðstefna um NPA
Opin ráðstefna á vegum verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA).
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA): Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun.
Stöðuúttekt á vinnu verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og lýsing á verklagi í fyrsta áfanga verkefnisins.
Haldin 10. febrúar 2012 kl. 11.00–16.00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura.
Skráning HÉR http: http://www.vel.is/npa
Dagskrá
10.30–11.00 Skráning
11.00–11.10 Ávarp.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
11.10–12.10 Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) – leiðbeiningar um framkvæmd fyrir þjónustusvæði, sveitarfélög, notendur og aðstoðarfólk.
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður og formaður verkefnisstjórnar NPA.
12.10–12.30 Fyrirkomulag við ráðningar á aðstoðarfólki – ráðningarsamningar, kaup og kjör.
Sólveig B. Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
12.30–12.40 Aðkoma Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að greiðslum vegna NPA.
Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu.
12.40–13.30 Léttar veitingar.
13.30–13.55 Hugmyndafræði NPA.
Freyja Haraldsdóttir og Embla Ágústsdóttir, frá NPA-miðstöðinni.
13.55–14.15 Hvernig ber fólk sig að? Framkvæmd NPA hjá þjónustusvæðum og sveitarfélögum.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir verkefnisstjóri.
14.15–14.40 Þjónustusamningar milli notenda og þjónustusvæða/sveitarfélaga.
Þór Garðar Þórarinsson, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu.
14.40–15.20 Hlutverk notenda við framkvæmd notendastýrðar persónulegrar aðstoðar (NPA) – verkstjóri – vinnuveitandi?
Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins.
Bryndís Snæbjörnsdóttir foreldri.
15.20–15.35 Samantekt.
Guðmundur Steingrímsson, formaður verkefnisstjórnar NPA.
15.45–16.00 Léttar veitingar.
Bein útsending verður frá ráðstefnunni á Netinu og verður aðgengileg á
vef velferðarráðuneytisins: http://www.vel.is/npa
Þeir sem kjósa að fylgjast með ráðstefnunni á vefnum skrái sig á heimasíðu
NPA http://www.vel.is/npa og munu gögn sem kynnt verða á
ráðstefnunni verða send viðkomandi.
Óski þátttakendur sérstaks stuðnings við að taka þátt í ráðstefnunni eru þeir
beðnir um að koma þeim óskum á framfæri fyrir 1. febrúar næstkomandi á vef verkefnisstjórnarinnar: http://www.vel.is/npa
Ráðstefnustjóri er Gyða Hjartardóttir, félagsþjónustufulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
27.1.2012 -