Þorláksmessa að sumri 20. júlí. Etið til góðs.

Sæl og blessuð

Að venju höldum við upp á Þorláksmessu að sumri 20. júlí nk. að þessu sinni verður skötumessan haldinn á sal Miðgarð, nýr salur í Gerðaskóla í Garði. Við gerum ráð fyrir töluverðum fjölda og allur viðbúnaður miðast við það. Þess verður sérstaklega gætt að allir fái nóg af skötu og saltfiski ásamat meðlæti. Axel Jónsson matreiðslumeistari verður sjálfur við pottana og tryggir bæði gæði og magn.

Fyrir ári síðan komu 160 gestir í Samkomuhúsið í Garði en nú er gert ráð fyrir yfir 200 manns. Við hvetjum konur og karla að mæta og taka með sér maka, vini, kunningja eða vinnufélaga.

Eins og áður eru skemmtiatriði heimatilbúin og byggjast fyrst og fremst á þeim gestum sem kunna að mæta og veit ég að þeir sem slógu í gegn fyrir ári síðan hugsa sér gott til glóðarinnar og mæta með skemmtiefni í töluðu máli og söng. Má þar nefna

Að þessu sinni mun allur hagnaður af kvöldinu renna til góðgerðarmála. Undirritaður, Skólamatur  og Fiskmarkaður Suðurnesja stöndum að messunni og við ætlum að styrkja Skammtímavistunin Heiðarholt, íbúa á Völlum og MND félagið. Þeim einstaklingum sem búa að Völlum og Heiðarholti verður boðið á unglingahelgi  síðar í haust að höfðu samráði við forstöðumenn á þessum heimilum. Kannski förum við með þau í rútu til Reykjavíkur á söngleikinn Boddy Holly og skemmtilegan veitingastað.

Ég bið ykkur að framsenda þennan póst til þeirra sem gætu haft áhuga.

Vinsamlegast sendið mér til baka svarpóst um hvort þið mætið og hvað margir verða með ykkur á asmundur@svgardur.is sím 8943900

 

Dagskrá:

·         Kl. 19:00 Skötumessa, samanstendur af kæstri skötu og eins skötu fyrir byrjendur, saltfiskur, rófur, kartöflur og nóg af hamsatólg. Með þessu er borið fram vatn.

·         Kaffi.

·         Skemmtidagskrá leikin af fingrum fram geri ráð fyrir fjölmörgum atriðum úr sal

·         Hrútavinafélagið í Árborg kemur með óvissuatriði

 

Hlakka til að sjá ykkur sem flest að styrkja gott málefni. Verð kr. 2.500.-

 

Með vinsemd

Ásmundur Friðriksson

Bæjarstjóri Garði

Sveitarfélagið Garður

Sunnubraut 4

250 Garður

www.svgardur.is

422 7150 / 894 3900

3.7.2010 -