Boðorð sjúklinga

Spánverjar sendu okkur eftirfarandi sem þeir kalla "boðorð sjúklinga". Samtök þeirra kalla þeir ADELA og eru þau staðsett í Valencia. Við þökkum þeim fyrir og vonum að íslenskir MND sjúklingar geti notfært sér þetta þó að sumt sé hægara sagt en gert.

  1. Reyndu aldrei að gera eitthvað sem þú veist að þú getur ekki, leyfðu ekki heldur öðrum að gera eitthvað fyrir þig sem þú veist að þú getur gert sjálfur.

  2. Aðlagaðu umhverfið að ástandi þínu með því að nota þau hjálpartæki sem þú getur komist yfir, hjálpartæki sem geta bætt upp skemmda vöðva.

  3. Vertu í sambandi við þá sem svipað er ástatt um, á þann hátt eykst kjarkur þinn.

  4. Veldu þér viðfangsefni þar sem möguleikar þínir minnka ekki þrátt fyrir sjúkdóminn. Haltu líkamlegri virkni í hámarki án þess þó að þreyta þig.

  5. Finndu leið til þess að vera gagnlegur öllum í kringum þig. Samvinna minnkar álagið.

  6. Leyfðu ekki þunglyndi, deyfð eða áhugaleysi að ná tökum á þér. ?að leiðir ekki til góðs heldur getur ástand þitt versnað.

  7. Notaðu ímyndunaraflið sem verkfæri til þess að forða þér frá þeirri einangrun sem MND getur valdið.

  8. Ekki finnast þér þú vera óæðri þó að þú sért öðruvísi, stattu á rétti þínum til að vera hamingjusamur einstaklingur.

  9. Leitaðu hjá sjálfum þér að þeim styrk sem þú þarft til þess að geta haldið áfram og þú kemst að því að MND getur ekki haft áhrif á það besta í þér ef þú vilt ekki að hann geri það.

  10. Misstu aldrei vonina. Enginn hefur enn fundið lækningu en einhvern tímann mun einhver gera það, kannski fyrir þig?

31.8.2003 -