Skip to main content
Greinar

Patrick Quinn einn forvígismanna ísfötuáskorunarinnar svökölluðu lést af völdum ALS sjúkdómsins 22. nóvember 2020. Áskorunin fór sem eldur í sinu árið 2014 þegar fólk safnaði stórfé til rannsókna á sjúkdómnum með því að hella yfir sig úr fötu fullri af ís

By 23. nóvember 2020október 24th, 2022No Comments
Patrick Quinn einn forvígismanna ísfötuáskorunarinnar svökölluðu lést af völdum ALS sjúkdómsins 22. nóvember 2020. Áskorunin fór sem eldur í sinu árið 2014 þegar fólk safnaði stórfé til rannsókna á sjúkdómnum með því að hella yfir sig úr fötu fullri af ísköldu vatni.
Mynd: Irish Times
Patrick Quinn einn þeirra sem gerði ísfötuáskoruna að alþjóðlegu æði árið 2014 er látinn, þrjátíu og sjö ára að aldri. Quinn greindist með ALS eða Lou Gehgrig sjúkdóminn fyrir sjö árum. Ísfötuáskoruninni var ætlað að safna fé til rannsóknar á sjúkdómnum.
 

ALS er taugahrörnunarsjúkdómur, algengasta form hreyfitaugahrörnunar (MND). Þótt Quinn væri ekki upphafsmaður ísfötuáskorunarinnar tókst honum ásamt Peter Frates, fjölskyldu og vinum að gera hana að alþjóðlegu fyrirbæri.

Milljónir um allan heim tóku þátt í áskoruninni sem fólst í því að hella yfir sig heilli fötu af ísköldu vatni og setja myndband af því á netið. Tilgangurinn var að safna fé til rannsókna á ALS sjúkdómnum.

Alls söfnuðust um 220 milljónir dala í Bandaríkjunum og fjármagnið hefur skilað mikilvægum árangri í rannsóknum á sjúkdómnum. Víða annar staðar söfnuðust miklir peningar í gegnum áskorunina, þar á meðal á Íslandi.

Fjöldi frægðarfólks tók þátt í áskoruninni á sínum tíma, þar á meðal George W. Bush fyrrverandi Bandaríkjaforseti, söngvarinn Justin Bieber og söngkonan Lady Gaga.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, knattspyrnukappinn Gylfi Sigurðsson og fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir voru meðal þeirra sem tóku áskoruninni hér á landi.

Nokkuð var deilt um hvort ísfötuáskorunin gæti verið hættuleg þeim sem tóku þátt og eins hvort hún beindi athyglinni of mikið að gerandanum og frá viðfangsefninu sjálfu.